jámm

Já er enn að skoða hvort ég nenni að blogga er að kafna úr leti Whistling

Erum bara búin að vera heima og hafa það kósý búin að vera barnlaus síðan á jóladagskvöld svo við höfum bókstaflega ekki þurft að gera neitt ;) en það verður nú samt ósköp gott að knúsa þau á föstudaginn InLove 

Ekkert mikið að frétta af þessum bæ nema bara að allt gengur vel og afslappað...

Jú kisa er komin aftur búin að vera í burtu í viku núna....


jeij

Sauma moodið kom loksins aftur Grin  En tókst að gera villu og ég þoooooli ekki að rekja upp svo ég fór með my shoes til Rósu sem að sjálfsögðu bjargaði Dögginni og rakti þetta upp OG saumaði fyrir mig svo ég þarf ekki að gera þetta ALLT aftur InLove  nema hvað að ég ákvað að byrja á nýju því það er svo skemmtilegt að getað skipt á milli nema hvað þegar ég var búin með þó nokkurn slatta fattaði ég að ég væri með kolvitlausann lit Angry  ég meina hver í veröldinni skýrir ljósbrúnann dark brown og dökkbrúnann V-dark brown !!! en er búin að rekja það upp og neita að byrja aftur fyrr en Rósa mín er búin að hjálpa mér að flokka litina því þeir voru ekkert merktir Shocking  

smjússíbússí

Jibb það er sko alltaf fjör hér Wink  Börnin í pabbahelgi og þá tók ég að mér tvo "litla" loðbollta í staðinn InLove  Þeir Funi og Úlfur ætla að fá að vera hérna þar til á sunnudag. Við skelltum okkur nú samt í bíó í gærkvöldi á sexdrive alveg ágætis mynd nema hvað sumir sváfu meira en aðrir í salnum Tounge  Var nú ekki viss um hvernig íbúðin myndi líta út þar sem ég hef aldrei áður skilið úlf eftir einann en merkilegt nokk þá virðast þeir bara hafa sofið að vísu í mínu rúmi en þeri gerðu amsk ekkert af sér á meðan Police  

Merkilegt

Alveg merkilegt hvað fréttir geta verið villandi þar sem ég er nokkuð viss um að það eru öllu fleiri en 50 manns þarna í vinnu hugsa að það sé nær 150....
mbl.is Uppsagnir hjá Klæðningu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ein ég sit og sauma

Jebb á ágætlega við Wink Kallinn farinn að vinna svo nú þarf ég víst að skemmta mér sjálf og hvað er betri skemmtun en að sauma ? Ég hef nú ekki náð neinum merkum áfanga en það að byrja aftur er merkur áfangi út af fyrir sig Grin Skellti inn 2 myndum af því sem ég er búin með í shoe shopper annars var ég að fatta eitt mun stærra vandamál en það að Rósa hafi rakið upp allann rammann minn Pinch Það er það að ég hreinsaði tölvuna mína til að skila henni og hinn helmingurinn af biscornuni minni var þar og nú get ég ekki klárað nema að Rósa hin úrræðagóða hafi e-ð ráð handa mér... annars verð ég að viðurkenna að ég var næstum búin að gleyma hvað þetta er aflappandi ég hreynlega eeeelllllssskkkaaaa að sauma InLove ætla að halda áfram

 Kv La Dögg


Mánudagur

Skellti inn myndum frá helginni Police

Eitthvað sem allir ættu að hafa í huga :)

Þú þarft ekki að svara spurningunum.

Lestu verkefnið og þér mun verða þetta ljóst:

1. Nefndu fimm auðugustu einstaklingana í heiminum.
2. Nefndu fimm síðustu sigurvegara í fegurðarsamkeppni Evrópu.
3. Nefndu tíu einstaklinga, sem hafa unnið Nobels verðlaunin.
4. Nefndu sex leikara og leikkonur, sem unnu Óskars verðlaunin á síðasta ári.

Hvernig gekk þér?

Niðurstaðan er, að enginn okkar man fyrirsagnir gærdagsins.
Þetta eru ekki annars flokks afreksmenn. Þeir eru þeir bestu á sínu sviði. En klappið deyr út. Verðlaunin missa ljómann. Afrekin eru gleymd. Viðurkenningarnar og skírteinin eru grafin með eigendum sínum.

Hér eru nokkrar aðrar spurningar. Sjáðu hvernig þér gengur með þær:

1. Skrifaðu nöfnin á fimm kennurum sem hjálpuðu þér á þinni skólagöngu.
2. Nefndu þrjá vini, sem hafa hjálpað þér á erfiðum stundum.
3. Nefndu fimm einstaklinga, sem hafa kennt þér eitthvað mikilvægt.
4. Hugsaðu um fimm einstaklinga, sem kunnu að meta þig að verðleikum.
5. Hugsaðu um fimm einstaklinga, sem þér þykir gott að umgangast.

Auðveldara?

Lexían: Fólkið sem skiptir þig mestu máli í lífinu eru ekki þeir,
sem hafa bestu meðmælabréfin, mestu peningana eða flestu
verðlaunin. Heldur þeir, sem finnst þú skipta mestu máli. Kissing


Sumarbústaður :D

Jamm skelltum okkur í sumarbústað um helgina sem var vægast sagt yndisleg Joyful vorum snemma á því á föstudaginn og vorum löggð af stað úr bænnum um 14:30, hinn brjálaði jeppaeigandi ákvað að reyna að hræða úr mér líftóruna og keyrði kaldadalinn en vorum samt ekki nema 1 og 1/2 tíma og of háann blóðþrýsting Tounge byrjuðum á því að láta renna í pottinn sem var bara æði. Bökuðum pizzur og börnin fengu að gera sína egin ekkert smá sport, held þau hafi heldur aldrei borðað svona mikið og eftir að hafa hrætt líftóruna úr börnunum með hinni klassíski bigfoot var liðinu komið í háttinn. Vöknuðum á laugardaginn og skelltum okkur í göngutúr um húsafell enduðum á því að finna voða skemmtileg leiktæki þar sem börnin nutu sín í klessu og léku sér í um klukkutíma Grin Eftir það var liðið orðið glorhungrað svo ég skellti í grónagraut og enn var látið renna í pottinn ættum amsk að vera hrein eftir helgina lol. Elduðum læri á laugardagskvöldið sem var ógó gott með brúnuðum kartöflum og sveppasósu namm InLove Ákváðum að fara bara snemma í bæinn á sunnudag og skelltum okkur í kaffi til mömmu hanns Bubba sem að sjálfsögðu gerði pönnukökur fyrir dekurdýrið Tounge Það merkilegasta var þó það að eftir heila helgi af afslöppun var ég að leka niður af þreytu Shocking mamma og Gísli komu við um 21 með kökur úr afmælinu frá Sólveigu ekki slæmt það þar sem mig langaði svoooo í bananakökuna Whistling 

en það þýðir ekkert að kvarta um bloggleysi ef maður kvittar ekki fyrir að hafa verið að lesa og hana nú Police


Klukk

1. Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina
- Heildsala
- Subway
- Pizzastaðir
- Bókhald

2. Fjórar íslenskar bíómyndir sem ég held upp á:
-   Þoli ekki íslenskar myndir

3. Fjórir staðir sem ég hef búið á:
-  201
-  112
-  430
-  105 og alveg skrilljón póstnúmer í viðbót :P


4. Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
-   Peking
-   Kaupmannahöfn
-   Xian
-   London

5. Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:
-   Dr Phil

-   Greys anatomy
-   Gossip girl 
-   OTH

6. Fjórar síður sem ég skoða daglega:
-   mbl.is
-   facebook.com
-   vedur.is
-   bloggið mitt

7. Fernt matarkyns sem ég held upp á:
-   Nautalund a la mamma
-   Pasta a la Dögg
-   Fondue
-   Læri

8. Fjórar bækur/blöð sem ég held upp á/les oft:
-   Les of lítið :p

9. Fjórir staðir sem ég vildi vera á núna:
-  allt of flókið er sátt þar sem ég er :)


10. Fjórir bloggarar sem ég á að klukka:
-     Rósa
-     og bara þig :)


Tómlegt

Jámm Funi minn er farinn í sveitina og það er svo tómlegt hérna Crying  vantar allt dótið hanns í garðinn og vantar litla aulann að þvælast fyrir fótunum á manni.. en þetta var best fyrir alla og ég veit að hann mun hafa það mun betra í sveitinni hjá Biggu sem er búin að sakna hans alveg heil ósköp og var hamingjusömust í heimi með að fá hann InLove  það er svona það sem mér tekst að hugga mig við að hún þurfti að láta mig hafa hann vegna óviðráðanlegra aðstæðna og nú er ég að gera það sama og sem betur fer vildi hún taka við honum með glöðu geði Joyful  fór með hann sjálf uppeftir í gær og var í vandræðum að keyra heim því mig langaði bara að fara að háskæla VB var í því að segja mér að við mættum alltaf koma og heimsækja hann

Næsta síða »

La Dögg

Döggin..
Döggin..
hmmm...

Jan. 2012

S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband